fbpx

Pílagrímaganga úr Hreppum á Skálholtshátíð
18.-20. júlí 2014

Í fyrra var efnt til pílagrímagöngu um Hreppana og til Skálholts og endað þar á Skálholtshátíð. í ár verður gangan endurtekin og heldur í bætt. Rifjuð verður upp saga Daða Halldórssonar Og Ragnheiðar Brynjólfsdóttur biskups í Skálholti en eins og kunnugt er fjallaði óperan Ragnheiður um þessa dramatísku sögu. Það er sr. Halldór Reynisson f.v. sóknarprestur í Hruna sem leiðir gönguna. Dagskrá pílagrímagöngunnar verður sem hér segir:

18. Júli – föstudagur kl. 16:
Safnast saman í Stóra-Núpskirkju. Staðarskoðun, fararblessun pílagríma. Gengið í Steinsholt að gröf Daða Halldórssonar og síðan sem leið liggur að Stóru-Laxá gegnt Hrepphólum.

19. júlí – laugardagur kl. 13:
Staðarskoðun í Hrepphólakirkju – sögumenjar og fornir gripir. Tákn pílagrímsins. Gengið út í Auðsholt.

20. júlí – sunnudagur kl. 10:
Safnast saman í Auðsholti. Fólk ferjað yfir Hvítá. Sagt frá Ragnheiði Brynjólfsdóttur. Gengið í Skálholt og tekið þátt í hátíðarmessu kl. 14 á Skálholtshátíð.

Fólk getur gengið með einn dag eða alla – gangan er öllum að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Reynisson, netfang. halldor.reynisson@kirkjan.is ,s. 856-1571