fbpx

Heilbrigðisstefna til ársins 2030

Opinn kynningarfundur í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
14. ágúst kl. 17 – 19.
Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030
var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þetta eru mikilvæg tímamót
fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu. Á fundinum verður fjallað um hvað
felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og
hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í
dreifðari byggðum landsins.
Heilbrigðisstefnan verður kynnt í öllum heilbrigðisumdæmum landsins, en
fundurinn á Suðurlandi er þriðji í röðinni.

Drög að dagskrá:

  •  Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnir stefnuna
  • Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands – Sýn
    forstjóra
  • María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands – Áhrif
    heilbrigðisstefnu á hlutverk og starfsemi SÍ.
  • Pallborðsumræður
    Auk frummælenda taka þátt í pallborðsumræðum:
    – Eva Björk Harðardóttir, sveitarstjóri í Skaftárhreppi og formaður
    Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
    – Ásthildur Knútsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu gæða og forvarna í
    heilbrigðisráðuneytinu
  • Heilbrigðisráðherra – samantekt
  • Fundarslit

Fundarstjóri: Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og
formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Fundurinn verður einnig sendur beint út á facebooksíðu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.