fbpx

Lokafrestur til að skila inn umsóknum í Uppbyggingarsjóð Suðurlands er til og með  19. apríl

Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:

  • Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi
  • Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi
  • Að styðja við atvinnuskapandi- og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is. Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn sudurland.is.

Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna hér