fbpx

Skipulagsstofnun kynnir auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026.

Fundur í Reykjavík 29. janúar kl. 15:00-17:00 verður sendur út í gegnum heimasíðu Skipulagsstofnunar.

Á fundinum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags.

Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, má nálgast á www.landsskipulag.is og www.skipulagsstofnun.is, en frestur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015.

Matslýsing vegna kerfisáætlunar 2015-2026 er aðgengileg hér á  heimasíðu Landsnets, en frestur til að gera athugasemdir eða koma með ábendingar við matslýsinguna er til og með 30. janúar 2015