fbpx

Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir landsæfingu sunnudaginn 19. Október nk., og býður þjóðinni jafnframt í mat. Alls verða 48 fjöldahjálparstöðvar opnaðar um allt land þar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins standa vaktina, rétt eins og um alvöru neyðarástand væri að ræða. „Á síðustu vikum höfum við sem búum á þessari eyju í Norður-Atlantshafi verið rækilega minnt á kraft óútreiknanlegra náttúruafla. Hættan er ætíð til staðar fyrir alla sem hér eru staddir, þar sem neyð gæti orðið raunin á örskammri stundu. Skapist alvöru neyð er mikilvægt fyrir alla landsmenn, og gesti okkar einnig, að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í öruggt skjól“, segir í tilkynningu frá Rauða krossinum. Klúbbur matreiðslumeistara leggur Rauða krossinum lið á landsæfingunni með því að reiða fram þjóðarréttinn, íslenska kjötsúpu. Rauði krossinn vonast til að sjá sem flesta á landsæfingunni, það sé hagur okkar allra. Á Suðurlandi verða hjálparstöðvar opnar í Vallaskóli á Selfossi, Grunnskólanum í Hveragerði, Kirkjubæjarskóla á Kirkjubæjarklaustri, Hvolsskóla á Hvolsvelli og Víkurskóli í Vík í Mýrdal.