fbpx

Á næstu dögum mun Míla og TRS á Selfossi hefjast handa við lagningu Ljósveitu í Þorlákshöfn.  Settir verða upp götuskápar í hverfum sem svo verða  tengdir á ljósleiðara. Framkvæmdunum mun fylgja eitthvað jarðrask í götum, þar sem koma þarf fyrir ljósleiðaralögnum til götuskápa.  Sjaldnast er þörf á framkvæmdum hjá endanotendum vegna Ljósveitunnar, því með nútímatækni eru nýttar fyrirliggjandi lagnir til að tengja heimilin við götuskápa sem svo eru tengdir ljósleiðara.

Áætlað er að lagningu til allra heimila í Þorlákshöfn verði lokið í haust og þá verða íbúar Þorlákshafnar komnir meða möguleika á að nálgast háhraðaþjónustu hjá sínum þjónustuaðila. Míla starfar eingöngu á heildsölumarkaði og veitir öðrum fjarskiptafyrirtækjum aðgang að kerfum sínum. Ljósveitan er opið aðgangsnet sem öll fjarskiptafyrirtæki geta haft aðgang að.

Með tilkomu Ljósveitu Mílu fá íbúar möguleika á mjög svo auknum internethraða, allt að 50 Mb/s til heimilis og 25 Mb/s frá heimili. Aukinn hraði býður upp á kjöraðstæður til fjarvinnu, afþreyingar og samskipta.

Upplýsingar um götuskápavæðingu Mílu og tengd heimili má nálgast á heimasíðu Mílu, www.mila.is