fbpx

Fimmtudaginn 28. janúar nk. munu fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa kynna styrkja- og samstarfsmöguleika í Evrópusamstarfi. Kynningin verður haldin kl. 11:00-13:00 í Háskólanum í Reykjavík, í miðrými sem kallað er Sól, og kl. 14:30-16:30 í Háskóla Íslands, á Háskólatorgi.

Evrópusamvinna er samstarfsvettvangur samstarfsáætlana ESB á Íslandi, sjá www.evropusamvinna.is . Þar er að finna upplýsingar um allar samstarfsáætlanir sem Ísland er þátttakandi í innan Evrópusambandsins. Áætlanirnar eru reknar af mismunandi aðilum og er vefsíðunni ætlað að auðvelda yfirsýn yfir helstu áætlanir sem Íslendingar taka þátt í, en allt frá tilkomu EES samningsins árið 1993 hafa íslenskir aðilar tekið virkan þátt í margs konar Evrópusamstarfi

Sjá nánar hér