fbpx

Laugardaginn 15. nóvember hlaut Hótel Fljótshlíð í Rangárþingi eystra umhverfisvottun norræna svansins þegar Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra, afhenti vottunina við formlegum hætti í sal hótelsins. Hótelið er þar með komið í hóp sjö gististaða á landinu sem hafa hlotið umhverfisvottun norræna svansins en Hótel Fljótshlíð er fysta hótelið sem gengur í gegnum nýjar og hertar kröfur fyrir svansvottun.

Hótel Fljótshlíð er fjölskyldufyrirtæki, starfrækt að Smáratúni í Fljótshlíð. Ferðaþjónusta hófst þar árið 1986 þegar Sigurður Eggertsson og Guðný Geirsdóttir gerðust meðlimir að Ferðaþjónustu bænda. Árið 2006 komu dóttir þeirra og tengdasonur, Arndís Soffía Sigurðardóttir og Ívar Þormarsson matreiðslumeistari staðarins, inní reksturinn. Hótel Fljótshlíð hefur unnið samkvæmt sjálfbærnisstefnu frá árinu 2007 og má segja að umhverfisvottunin sé hápunktur þeirrar vinnu þó áfram verði unnið á átt að aukinni sjálfbærni.

Á myndinni eru frá vinstri: Elísabet Björney Lárusdóttir umhverfisráðgjafi, Arndís Soffía Sigurðardóttir hótelstýra, Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra og Elva Rakel Jónsdóttir teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun.

Fljótshlíð