fbpx

Miðvikudaginn 20. maí standa Nýheimar, Matís og SASS fyrir kynningu um tækifæri í framleiðslu matar. Fyrirlesarar eru Arnljótur Bjarki Bergsson frá Matís, Erlendur Björnsson á Seglbúðum og Halldór Halldórsson hjá Pakkhúsinu. Ingunn Jónsdóttir frá Matís verður með kynningu á Matvælabrúnni hjá Háskólafélagi Suðurlands og mun einnig fjalla um umbúðir og markaðssetningu matvæla. Ómar Frans gefur þátttakendum að smakka á afurðum sínum. Sérfræðingar frá Matís verða til skrafs og ráðagerða að loknum fyrirlestrum.  Bændur, matvælaframleiðendur, matreiðslufólk og aðrir áhugasamir eru hvattir sérstaklega til að mæta. Boðið er upp á hádegisverð. Skráning fer fram hjá nina@matis.is s. 560 2050 og fanney@sudurland.is s. 898 0369. Verð kr. 1.000.-