fbpx

Frumkvöðladagur uppsveitanna verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 13:00 – 17:00 á Café Mika, Reykholti.
Dagurinn er haldinn í samstarfi sveitarfélaganna í uppsveitum Árnessýslu og skipulagður af ferðamálaráði uppsveita Árnessýslu.
Markmiðið er að stuðla að nýsköpun og eflingu atvinnutækifæra á svæðinu. Hugað verður að því hvernig er að hefja atvinnurekstur eða þróa. Stoðkerfið verður kynnt, styrkjamöguleikar og reynslusögum deilt.
Áhugasömum gefst  tækifæri til að viðra hugmyndir sínar við ráðgjafa.  Fjölbreytt erindi verða flutt á fundinum m.a. koma gestir frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og  atvinnuráðgjöf SASS.
Auk þess sem fulltrúar fyrirtækja í uppsveitum deila reynslusögum.
Nánari upplýsingar þegar nær dregur verða á www.sveitir.is
Óskað er eftir skráningu þátttakenda á netfang asborg@ismennt.is sími 898 1957

Þjórsárdalur