fbpx

Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Ár hvert eru allt að tíu sérvalin sprotafyrirtæki valin til þátttöku og fá þau tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.

Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring.

Hraðallinn hefst 15. janúar 2018 og fer fram í Reykjavík.

Opið er fyrir umsóknir á www.startuptourism.is og umsóknarfrestur er til 11. desember 2017.

Taktu næsta skref með Startup Tourism