fbpx

avs-auglysing-15x165-sm-2016

AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensk sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 20:00, 1. desember 2016. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@byggdastofnun.is og bréflega á póstfangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur. Vakin er athygli á því að umsóknum þarf bæði að skila rafrænt og bréflega.