fbpx

Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Umsóknafrestur er til kl. 12 á hádegi þann 26. september. Umsóknareyðublað  og nánari upplýsingar má nálgast hér

Markmið verkefnisins

  • Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
  • Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja

Sérstök áhersla er lögð á

  • Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf
  • Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun
  • Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi