fbpx

haldinn fimmtudaginn 3. nóvember  2011,  kl. 13.00  – símafundur

Mætt:  Elfa Dögg Þórðardóttir, Aðalsteinn Sveinsson, Elín Einarsdóttir, , Reynir Arnarson, Gunnlaugur Grettisson, og Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.  Einnig tók Ásta Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Árborgar þátt í fundinum. Guðfinna Þorvaldsdóttir  og Sigríður Lára Ásbergsdóttir boðuðu forföll.

Dagskrá

 1. Niðurstaða útboðs almenningssamgangna á Suðurlandi  – val tilboða.

Eftirfarandi tilboð bárust í verkhluta 1 og 2 samtals:

1. Bílar og fólk kr. 119.835.203.-
2. Hópferðamiðstöðin ehf. kr. 162.697.220.-
3. Skagaverk kr. 223.457.350.-
4. Krókur kr. 220.068.274.-
5. Kynnisferðir ehf kr. 226.081.137.-
6. Hópbílar hf kr. 188.003.528.-
7. Icelandexcursions Allrahanda ehf kr. 198.616.405.-

Farið var yfir bréf VSÓ ráðgjafar, dags. 25. október 2011,  afrit af bréfi Málflutningsskrifstofu Reykjavíkur dags. 27. október 2011 og VSÓ ráðgjafar, dags. 3. nóvember 2011.

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

Stjórn SASS samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Bíla og fólks og felur framkvæmdastjóra Strætó bs. í samráði við Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar að tilkynna bjóðendum þá ákvörðun.  Jafnframt  felur stjórn SASS framkvæmdastjóra Strætó bs. að ganga til samninga við Bíla og fólk ehf fyrir hönd SASS á grundvelli útbóðsgagna og tilboði Bíla og fólks ehf.

Fundi slitið kl.  13.20