haldinn fimmtudaginn 3. nóvember 2011, kl. 13.00 - símafundur
Þátttakendur: Elfa Dögg Þórðardóttir, Aðalsteinn Sveinsson, Elín Einarsdóttir, , Reynir Arnarson, Gunnlaugur Grettisson, og Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Einnig tók Ásta Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Árborgar þátt í fundinum. Guðfinna Þorvaldsdóttir og Sigríður Lára Ásbergsdóttir boðuðu forföll.
Dagskrá
1. Niðurstaða útboðs almenningssamgangna á Suðurlandi – val tilboða.
Eftirfarandi tilboð bárust í verkhluta 1 og 2 samtals:
- Bílar og fólk kr. 119.835.203
- Hópferðamiðstöðin ehf. kr. 162.697.220
- Skagaverk kr. 223.457.350
- Krókur kr. 220.068.274
- Kynnisferðir ehf kr. 226.081.137
- Hópbílar hf. kr. 188.003.528
- Icelandexcursions Allrahanda ehf kr. 198.616.405
Farið var yfir bréf VSÓ ráðgjafar, dags. 25. október 2011, afrit af bréfi Málflutningsskrifstofu Reykjavíkur dags. 27. október 2011 og VSÓ ráðgjafar, dags. 3. nóvember 2011.
Eftirfarandi samþykkt var gerð:
Stjórn SASS samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Bíla og fólks og felur framkvæmdastjóra Strætó bs. í samráði við Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar að tilkynna bjóðendum þá ákvörðun. Jafnframt felur stjórn SASS framkvæmdastjóra Strætó bs. að ganga til samninga við Bíla og fólk ehf fyrir hönd SASS á grundvelli útbóðsgagna og tilboði Bíla og fólks ehf.
Fundi slitið kl. 13.20
Elfa Dögg Þórðardóttir
Aðalsteinn Sveinsson
Elín Einarsdóttir
Reynir Arnarson
Gunnlaugur Grettisson
Þorvarður Hjaltason
