F U N D A R G E R Ð
Aukaaðalfundur SASS, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á Suðurlandi haldinn í Félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli, föstudaginn 15. febrúar 2008 kl. 13:00
Mætt:
Þetta gerðist:
- Setning formanns.
Sveinn Pálsson, formaður setti fundinn og tilnefndi fundarstjóra þau Unni Brá Konráðsdóttur og Þorgils Torfa Jónsson.
- Kosning fundarritara og kjörbréfanefndar.
Ágúst Ingi Ólafsson kjörinn fundarritari.
Eftirtaldir kosnir í kjörbréfanefnd:
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Sigurður Ingi Jóhannsson
Guðmundur Þór Guðjónsson
Gunnar Þorgeirsson, formaður kjörbréfanefndar tók til máls og kynnti niðurstöðu kjörbréfanefndar. Fjörutíu fulltrúar mættir og fundurinn því lögmætur.
3 . Tillaga stjórnar SASS til aukaaðalfundar 15. febrúar 2008
Aukaaðalfundur SASS, haldinn á Hvolsvelli 15. febrúar 2008, samþykkir að hætta við áform um sameiningu SASS og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands.
Greinargerð:
Ástæður þessarar tillögu stjórnar eru að hvorki er samstaða innan stjórnar né meðal sveitarfélaganna um sameininguna. Stjórnin telur að grundvallaratriði í rekstri samstarfsstofnana sveitarfélaganna sé að samstaða ríki um skipulag og starfsemi og því sé ekki rétt að stofna til breytinga sem leiði til missættis aðildarsveitarfélaganna.
Enginn kvaddi sér hljóðs.
Tillagan borin upp og samþykkt með 28 atkvæðum, enginn á móti.
4. Kynning á markaðsstofu Suðurlands
Kjartan Lárusson kynnti þá vinnu sem fram hefur farið við undirbúning að stofnun Markaðsstofu Suðurlands. Fram kom í máli hans að gott samstarf ferðaþjónustuaðila er lykillinn að góðum árangri í ferðaþjónustu. Miklvægt er að kynna Suðurland sem eina heild.
Jórunn Eggertsdóttir tók til máls og þakkaði fyrir hönd Markaðstofunnar fyrir það tækifæri stofunnar að fá að kynna málið á þessum fundi. Hún minntist sérstaklega á nýja heimasíðu verkefnisins sem færi í loftið á næstu dögum.
Aldís Hafsteinsdóttir tók til máls og spurði um það hvernig Markaðsstofunni væri stýrt á Norðurlandi.
Kjartan sagði að þar væri sérstök 7 manna stjórn. Sveitarfélögin væru ekki með stjórnarmenn en við þau eru gerðir þjónustusamningar.
Gunnar Þorgeirsson tók til máls og velti fyrir sér hvort sveitarfélögin þyrftu ekki að vera aðilar að markaðsskrifstofunni.
Kjartan sagði að það væri mikilvægt að öll sveitarfélögin á Suðurlandi væru með frá upphafi þá tæki það mun styttri tíma en ella að ná þeim árangri sem náðst hefur á Norðurlandi.
Sveinn Pálsson, formaður tók til máls og þakkaði Kjartani fyrir góða kynningu.
Að lokum þakkaði hann starfsmönnum fundarins og óskaði fundarmönnum góðrar heimferðar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:00
Ágúst Ingi Ólafsson, fundarritari.
