Aðalfundur 2003. stjórnarfundur SASS

34. aðalfundur SASS haldinn 14. og 15. nóvember 2003 að Laugalandi í Holtum, Rangárþingi ytra

Valtýr Valtýsson, formaður SASS setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna og þá sérstaklega fulltrúa Vestmannaeyjabæjar, en aðildarumsókn þeirra er á dagskrá fundarins. Lét hann síðan fundarstjórn í hendur Guðmundar Inga Gunnlaugssonar og Engilberts Olgeirssonar, með leyfi fundarins.

Guðmundur Ingi tók til máls og gekk úr skugga um lögmæti fundarins og lagði fram tillögu að kjörbréfa- og kjörnefnd:
Sigurður Bjarnason, formaður
Einar Pálsson
Eyja Þóra Einarsdóttir
Sigurður Ingi Jóhannsson
Árni Jón Elíasson
Til vara Þorsteinn M. Kristinsson

Var hún samþykkt samhljóða og tók þegar til starfa.

Næst á dagskrá var skýrsla stjórnar 2002 – 2003 flutt af Valtý Valtýssyni og fyrir liggur í fundargögnum. Þar var flutt ítarlegt yfirlit verkefna samtakanna á árinu, um fundi og þing, nefndir á vegum samtakanna, umsagnir um þingmál og rekstur stofnanna og verður þessara atriða getið síðar.
Valtýr lét þess getið að lokum að hann hygðist ekki gefa kost á sér áfram í stjórn SASS.

Kjörbréfa- og kjörnefnd hafði nú lokið störfum og voru gild kjörbréf fulltrúa 46 og 42 af þeim mættir og lögmæti ótvírætt.

Þá var tekin fyrir umsókn Vestmannaeyjabæjar um aðild að SASS, skv. bréfi dags. 29. október 2003, þar sem bærinn óskaði eftir fullri aðild að Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga og var orðið gefið frjálst um um það mál.

Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður tók til máls og sagðist vonast til að umsókninni yrði vel tekið, sveitarfélögin væru sterkari saman og þetta spor yrði öllum til heilla.

Var umsókn Vestmannaeyinga samþykkt með lófataki.

Kristín Hreinsdóttir, forstöðumaður Skólaskrifstofu Suðurlands flutti skýrslu stofnunarinnar, sem fyrir liggur í fundargögnum. Mikið og öflugt starf skólaskrifstofunnar vekur athygli á landsvísu.
Vísað til mennta- og menningarmálanefndar.

Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands flutti skýrslu stofnunarinnar og hefur starf hennar aldrei verið meira né fjölbreyttara.
Vísað til umhverfis- og heilbrigðisnefndar.

Þá var komið að því að tillögur stjórnar og þingfulltrúa væru lagðar fram ásamt málum sem vísað hefur verið til aðalfundar.

Fyrstur tók til máls Ágúst Ingi Ólafsson. Fjallaði hann um meðhöndlun sorpmála á Suðurlandi. Nú er á lokastigi vinna við skýrslu um kosti og galla þess að sameina sorpstöðvar án nokkurra skuldbindinga það að lútandi svo og endurskoðun á samvinnu SASS og Sorpstöðvarinnar.
Vísað til umhverfis- og heilbrigðisnefndar.

Viðar Steinarsson flutti svohljóðandi tillögu:

,, Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og. 15. nóvember 2003 skorar á þingmenn Suðurkjördæmis að tryggja aðkomu ríkisins að uppbygginaráformum á Gaddstaðaflötum þannig að ljúka megi fjármögnun verkefna vegna LM 2004. Einnig hvetur aðalfundurinn sveitarfélög, sem samþykkt hafa að koma að verkefninu til að skila sínum framlögum til verkefnisins þegar eftir er leitað. Þá skorar fundurinn á það sveitarfélag sem ekki hefur enn samþykkt aðild, að endurskoða fyrri ákvörðun og taka þátt í þessum sameiginlega verkefni Sunnlendinga”.
Fylgdi Viðar þessari tillögu úr hlaði með greinargerð.
Vísað til allherjarnefndar.

Ásmundur Sverrir Pálsson fylgdi úr hlaði eftirfarandi tillögum:

,, Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 skorar á sveitarfélög á Suðurlandi að leggja sitt af mörkum til að gera fötluðu fólki mögulegt að njóta sömu tækifæra og aðrir íbúar.”

,, Árið 2003 hefur í Evrópu verið tileinkað málefnum fatlaðra. Einkunnarorðin eru ,,Samfélag fyrir alla” og beinast áherslur að því að vekja almenning til vitundar um réttindi þeirra sem búa við fötlun. Skapa þarf fötluðu fólki aðstæður til þess að geta verið virkir þátttakendur í samfélaginu og geta búið við sambærileg lífskjör og aðrir hópar samfélagsins. Aðgengi í víðri merkingu er lykillinn að slíkum aðstæðum. Tekur það m.a. til ferlimála, búsetumöguleika, aðgangs að menntun og störfum, heilbrigðisþjónustu, tómstunda, menningar og afþreyingar.”
Vísað til allsherjarnefndar.

,, Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 fagnar framkominni þingsályktunartillögu sem allir þingmenn Suðurkjördæmis standa að um stofnun dagdeildar fyrir geðfötluð börn á Suðurlandi við Heilbrigðisstofnunina Selfossi. Fæstir skólar hafa á að skipa fólki með sérþekkingu á þeim viðamiklu vandamálum sem fylgja veikindum þessara barna og því um ómetanlegt framfararspor að ræða fyrir þessi börn.”
Vísað til allsherjarnefndar.

,, Vegna fyrirhugaðrar sameiningar heilbrigðisstofnunar og heilsugæslustöðva á Suðurlandi um næstu áramót ályktar aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember eftirfarandi:
Fyrirhuguð sameining verður að vera í nánu samstarfi við heimamenn þannig að þeir verði hafðir með í ráðum um þjónustu og skipurit nýrrar stofnunar. Með þessu nýja fyrirkomulagi verði tryggt að heilbrigðisþjónusta skerðist ekki frá því sem verið hefur heldur batni hún og verði fjölþættari eins og fyrirheit hafa verið gefin um.”
Vísað til allsherjarnefndar.

,, Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003 hvetur til þess að samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga um málefni tónlistarkennslu á framhaldsskólastigi að ljúka vinnu sinni sem allra fyrst.
Fundurinn leggur áherslu á að framhalds- og háskólanám er á hendi ríkisins og því eðlilegt að ríkið beri kostnað af tónlistarnámi á framhaldsskólastigi. Nauðsynlegt er að gengið verði frá samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um þetta mál hið fyrsta þar sem tónlistarnám fjölda nemenda er í óvissu eins og mál standa í dag.”
Vísað til mennta- og menningarmálanefndar.

Ragnheiður Hergeirsdóttir mælti fyrir eftirfarandi tillögum:

,, Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 skorar á stjórnvöld að tryggja til frambúðar stöðu sálfræðings við heilsugæslustöðvarnar á Suðurlandi.
Sú óvissa sem árlega hefur ríkt um stöðu sálfræðings er óþolandi og tímabært orðið að festa þessa þjónustu til frambúðar.”

Geðheilbrigðisþjónusta er ein af grunnstoðum heilbrigðiskerfisins og þarf að vera aðgengileg fólki í heimabyggð. Það er óviðunandi að þeir íbúar á Suðurlandi sem eiga við geðsjúkdóma að stríða þurfi að sækja alla geðþjónustu til Reykjavíkur.

,, Geðheilbrigðisþjónusta er á verksviði ríkisins og því telur aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 nauðsynlegt að komið verði upp skipulagðri geðheilbrigðisþjónustu í tengslum við þær stofnanir sem fyrir eru á svæðinu.
Fundurinn skorar á þingmenn Suðurlands og Alþingi að setja fjármagn í uppbyggingu geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu, íbúum Suðurlands til hagsbóta.”

,, Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 skorar á heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra að tryggja uppbyggingu og áframhaldandi rekstur réttargeðdeildarinnar að Sogni í Ölfusi.”

,, Fyrir liggur kostnaðaráætlun um viðbyggingu á Sogni sem gerir ráð fyrir sjö nýjum plássum, eða helmings stækkun og er kostnaður við stækkun áætlaður tæpar 30 m.kr.
Deildin hefur verið starfrækt í rúm 10 ár og hefur árangur verið með ágætum. Samstarf hefur verið með fangelsinu á Litla Hrauni og Réttargeðdeildinni að Sogni um geðþjónustu við fanga um nokkurra ára bil. Eðlilegt er að skoðað verði með hvaða hætti mætti tengja áframhaldandi þróun og uppbyggingu Sogns og uppbyggingu geðheilbrigðisþjónustu við almenning á Suðurlandi. Bent er á að í gildi er rekstrarsamningur milli Heilbrigðisráðuneytis og Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi um rekstur deildarinnar að Sogni.
Fundurinn telur mjög mikilvægt að þjónustan verði áfram starfrækt á Suðurlandi.”

,, Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 lýsir áhyggjum sínum yfir þeirri frestun sem orðið hefur á viðbyggingu við Heilbrigðisstofnunina á Selfossi sem hýsa á starfsemi sem nú er á Ljósheimum á Selfossi. Núverandi aðstaða á Ljósheimum er með öllu óviðunandi og hefur deildin verið rekin á undanþágum sl. þrjú ár.

Ítrekað hefur verið bent á að fyrirhuguð nýbygging gerir ekki mikið betur en að rúma þá sjúklinga sem nú eru á Ljósheimum og þörf er á fleiri rýmum. Suðurland er þéttbýlt svæði og nauðsynlegt að hjúkrunardeildin á Selfossi verði stærri en nú eru áform um. Minnt er sérstaklega á ákvæði 14.gr. laga um málefni aldraðra, hvað varðar aðstöðu fyrir aldraða með heilabilunareinkenni og ákvæði um einkaherbergi fyrir sem flesta.

Fundurinn skorar á heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra að þegar verði sett nægt fjármagn í þetta verkefni til að unnt verði að taka nýbygginguna í notkun árið 2005 eins og áætlað var. Einnig skorar fundurinn á ráðherrana að hefja þegar undirbúning að stækkun deildarinnar eins og segir hér að framan.”
Ofangreindum tillögum vísað til umhverfis- og heilbrigðisnefndar.

Margrét K. Erlingsdóttir lagði fram eftirfarandi:

,, Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 skorar á aðildarsveitarfélög sín að leggja áherslu á kynningu og þátttöku almennings í flokkun sorps.

Greinargerð:
Flokkun sorps er engin nýjung. Ekki er langt síðan að engu var fleygt á íslenskum heimilum. Um er að ræða að taka upp siði fyrri ára og flokka allan úrgang og gera hann að verðmætum. Móttaka á flokkuðum úrgangi er víða til staðar á Suðurlandi og er aðgengileg öllum. Með aukinni kynningu á flokkun úrgangs má reikna með að almenningur muni í auknum mæli taka þátt í þessari jákvæðu þróun í umhverfisvernd.
Að auki kemur flokkun til með að lækka sorphirðugjald heimilanna þar sem í kjölfar flokkunar mun sorp minnka sem um munar frá hverju heimili. Væri þá sjálfgefið að sveitarfélög færu að vigta sorp frá heimilum með hagræðingu og sparnað í huga. Þar sem sorp er vigtað eru dæmi þess að ekki er þörf að taka sorp nema aðra hverja viku.”
Vísað til umhverfis- og heilbrigðisnefndar.

,, 34. aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi 14. – 15. nóvember 2003 skorar á Vegagerð ríkisins að hraða lagningu og frágangi reiðvega með þjóðvegum.

Greinargerð:
Það er mikið öryggisatriði að reiðvegir séu lagðir með þjóðbrautum þar sem bæði umferð ríðandi manna og akandi hefur aukist mjög um landið undanfarin ár. Alveg er óviðunandi að menn þurfi að ríða kanta akvega á ferðum sínum og skapa þar með hættu í umferðinni.”

,, 34. aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi 14. – 15. nóvember 2003 skorar á Vegagerð ríkisins að gera nú þegar undirgöng fyrir ríðandi og gangandi undir nýja veginn við nýju Þjórsárbrúna Árnessýslumegin.

Greinargerð:
Undirgöng undir þennan nýja veg eru lykilatriði ef nýta á gömlu brúna eins og áætlanir eru um fyrir umferð hesta. Algjörlega er óviðunandi að það sé mat Vegagerðar ríkisins að ekki sé þörf á undirgöngum beggja vegna við brúna, heldur einungis Rangárvallasýslumegin þar sem búið er að ganga frá undirgöngum, fleiru en einu. Mikil hætta skapast af því þegar umferð hesta fer yfir akvegi og umferð ríðandi manna upp með Þjórsá hefur aukist mjög síðustu ár, þess vegna er það alveg nauðsynlegt að þessi undirgöng verði að veruleika.”
Ofangreindum tillögum vísað til atvinnu- og samgöngunefndar.

Þorvaldur Guðmundsson mælti fyrir eftirfarandi:

,, 34. aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003 fagnar því að ríkisvaldið hefur samþykkt að taka þátt byggingu íþróttahúss við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Fundurinn hvetur ríkisvaldið til að leggja sitt af mörkum til fullnaðarfrágangs viðbyggingarinnar svo hægt verði að taka hana í notkun sem allra fyrst.”
Vísað til mennta- og menningarmálanefndar.

Valtýr Valtýsson mælti fyrir tillögum um breytingar á lögum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Vísast til þeirra í fundargögnum.

Þorsteinn Hjartason mælti fyrir eftirfarandi tillögu:

,, Aðalfundur SASS skorar á Vegagerðina að samþykkja þá hugmynd sem sett er fram í drögum að aðalskipulagi Ölfuss um undirgöng fyrir hestamenn og göngufólk á Hellisheiði á tveimur stöðum í Ölfusi milli Hveragerðis og Selfoss.”
Vísað til atvinnu- og samgöngunefndar.

Margeir Ingólfsson mælti fyrir eftirfarandi:

,,Aðalfundur SASS haldinn að Laugalndi, Holtum 14. og 15. nóvember 2003 hvetur ríkisvaldið til að stöðva málarekstur fyrir Óbyggðanefnd þar til endanlegur úrskurður dómstóla liggur fyrir en ríkisvaldið hefur lýst því yfir að það muni áfrýja dómi Héraðsdóms Suðurlands frá 6. nóvember 2003 til Hæstaréttar. Aðalfundurinn fagnar niðurstöðu Héraðsdóms þar sem staðfestur er úrskurður Óbyggðanefndar þess efnis að land innan þinglýstra landamerkja teljist ekki til þjóðlendu.”

Sveinn Sæland mælti fyrir eftirfarandi:

,, Aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi 14. og 15. nóvember fagnar þeim hugmyndum sem fram hafa komið í nefndaráliti um uppbyggingu Íþrótta- og Ólympíumiðstöðvar Íslands að Laugarvatni. Sveitarfélög á Suðurlandi ítreka að uppbyggingin hefur mikið gildi fyrir íþrótta- og forvarnarstarf á Íslandi. Hún styður við starf Íþróttafræðaseturs Kennaraháskólans og mun efla hana sem rannsóknar- og menntastofnun.”

,, Aðalfundurinn samþykkir að fulltrúar SASS taki þátt í viðræðum við ríkisvaldið um uppbyggingu Íþrótta- og Ólympíumiðstöðvar Íslands að Laugarvatni.”

,, Aðalfundur SASS , Laugalandi 14. og 15. nóvember 2003 skorar á menntamálaráðherra að varðveita sögufrægar skólabyggingar að Laugarvatni og leggur þar höfuðáherslu á að Héraðsskólinn að Laugarvatni, sem nú hefur verið friðaður fái forgang hjá ríkisvaldinu við uppbyggingu friðaðra húsa.”
Þessum tillögum var vísað til allsherjarnefndar.

Lúðvík Bergvinsson lagði fram eftirfarandi tillögu af hálfu Vestmannaeyjabæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss:

,, Vestmannaeyjabær og Sveitarfélagið Ölfus beina því til fundarins að taka undir og samþykkja stuðning við þau sveitarfélög, sem hafa farið þess á leit við ríkisvaldið (heilbrigðisráðherra) að taka yfir rekstur heilsugæslu og sjúkrahús í viðkomandi sveitarfélögum.”
Vísað til heilbrigðisnefndar.

Þorsteinn Hjartarson flutti eftirfarandi:

,, Aðalfundur SASS skorar á ríkisvaldið að standa með myndarlegum hætti að starfsemi og uppbyggingu Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi. Eigi skólinn að geta þróast eðlilega þarf stóraukið fjármagn til starfseminnar.”
Vísað til mennta- og menningarmálanefndar.

Einnig vísað til allsherjarnefndar 2 erindum, annars vegar frá Kjaramálanefnd eldri borgara frá 12/11 og hins vegar frá tveimur öryrkjum í Hveragerði, dags. 10/11 2003 vegna skattamála.

Ársreikningar of fjárhagsáætlanir SASS og undirstofnana þess.

Þorvarður Hjaltason fór yfir reikninga og áætlanir sem síðan var vísað til fjárhagsnefndar.

Starfsemi Fræðslunets Suðurlands.
Næst á dagskrá var erindi Jóns Hjartarsonar um Fræðslunet Suðurlands með yfirskriftinni Efling menntunar á Suðurlandi. Þar kom fram að starfsemi Fræðslunetsins er feiki öflug og sífellt í sókn þrátt fyrir fjárskort.
Vísað til mennta- og menningarmálanefndar.

Nú var gert hlé á fundarstörfum og snæddur hádegisverður. Að því loknu lýsti Sigurður Bjarnason, formaður kjörbréfa- og kjörnefndar yfir að kjörbréf Vestmannaeyinga hefðu verið yfirfarin og úrskurðuð gild. Af 53 réttkjörnum fulltrúum væru 49 mættir og ekki gerðar athugasemdir.

Ávörp gesta.
Fyrstur tók til máls Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ræddi hann aðallega um Jöfnunarsjóð, en þær skoðanir eru uppi að úthlutunarreglur séu ekki alls kostar réttlátar né raunhæfar, en minni fjármunir eru nú til skiptanna en efni stóðu til. Einnig ræddi hann sameiningu sveitarfélaga og fleiri sameiginleg málefni á þessum vettvangi.

Guðjón Bragason, skrifstofustjóri sveitarstjórnarmála í Félagsmálaráðuneytinu, tók næstur til máls. Hann drap á ýmsa möguleika í sameiningu sveitarfélaga, tilfærslur verkefna og ýmsa samvinnu ríkis og sveitarfélaga.

Margrét Frímannsdóttir, alþingismaður ávarpaði fundinn fyrir hönd þingmanna. Reifaði hún ýmsi mál sem þingmenn kjördæmisins vinna sameiginlega að með sveitarstjórnarmönnum. Því betri undirbúningur og samstaða í héraði – þeim mun betur gengur þingmönnum að vinna málefnunum brautargengi.

Næstur tók til máls Reynir Sveinsson, fulltrúi Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fór hann í stuttu máli yfir stöðu mála á Suðurnesjum í uppbyggingu þjónustu og öðrum málum, og flutti kveðju.

Kynning á ,,Vertu til” – samstarfsverkefni Sambands ísl. sveitarfélaga og Áfengis- og vímuvarnarráðs um að efla forvarnir í sveitarfélögum landsins.
Svandís Nína Jónsdóttir og Sigríður Hulda Jónsdóttir verkefnisstjórar fluttu fróðlegt erindi um nauðsyn forvarna sem sjálfsagðan þátt í hverju samfélagi.

Málefni fatlaðra – þjónusta í heimabyggð – reynsla Austfirðinga.
Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi flutti erindi. Þar hefur á síðasta áratug verið stefnt að því að styðja einstaklinginn til að bjarga sér í umhverfi sínu, en reynt er að veita ráðgjöf og stuðning við fjölskyldur og einstaklinga eftir þörfum hvers og eins. Fyrst og fremst er reynt að gera fötluðum einstaklingum kleift að búa í heimabyggð og lifa sjálfstæðu lífi. Megingildi Svæðisskrifstofu Austurlands byggjast fyrst og fremst á jákvæðni, sveigjanleika og skapandi viðhorfum. Einnig skapar þessi stefna meiri breidd í atvinnulífinu og kallar m.a. á vel menntað starfsfólk. Hún vill meina að málefni fatlaðra séu að mörgu leyti betur komin í heimabyggð.

Skýrsla nefndar um uppbyggingu háskólanáms á Suðurlandi.
Ásmundur Sverrir Pálsson.
Skv. samþykkt SASS 2002 var skipuð 3ja manna nefnd til stefnumörkunar um frekari uppbyggingu háskólanáms á Suðurlandi. Nefndina skipuðu Ásmundur Sverrir Pálsson, Margrét Einarsdóttir og Ragnar Sær Ragnarsson.
Nefndin vann tillögu um háskólanám á Suðurlandi, sem liggur fyrir í fundargögnum og er vísað til mennta- og menningarmálanefndar.

Skýrsla samgöngunefndar SASS.
Fyrir um ári var skipuð samgöngunefnd sem hafði það hlutverk að semja og leggja fram tillögu að samræmdri samgönguáætlun fyrir Suðurland. Í áætluninni skyldi koma fram forgangsröðun framkvæmda með vönduðum rökstuðningi.
Í samgöngunefndina voru kosnir eftirtaldir:
Bryndís Harðardóttir, Engilbert Olgeirsson, sem gerði grein fyrir starfi nefndarinnar, Magnús Ágústsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Þorvaldur Guðmundsson.
Tillögur og greinargerðir liggja nú fyrir í fundargögnum.
Vísað til samgöngu- og atvinnumálanefndar.
Skýrsla menningarmálanefndar.
Jóna Sigirbjartsdóttir og Sigurður Bjarnason gerðu grein fyrir vinnu starfshóps sem skipaður var 2001 til að hefja undirbúning að gerð samnings við Menntamálaráðuneytið um menningarmál á Suðurlandi.
Nefndin sem var skipuð til þessara verka:
Jónas Jónsson, Jóna Sigurbjartsdóttir, Gunnar Þorgilsson, Árni Jón Elíasson, Aldís Hafsteinsdóttir, Ingunn Guðmundsdóttir og Torfi Áskelsson ásamt Sveini Pálssyni og Sveini Sæland. Í nefndinni voru einnig frá Vestmannaeyjum Ingi Sigurðsson og Lúðvík Bergvinsson.

Nefndin leggur nú fram drög að stefnumótun og liggja þau drög fyrir í fundargögnum.
Vísað til mennta- og menningarmálanefndar.

Eftir kaffihlé tóku nefndir til starfa. Síðan bauð Rangárþing ytra í fordrykk í nýju glæsilegu íþróttahúsi í Þykkvabæ, þar sem einnig var snæddur kvöldverður og fagnaður góður.

Laugardaginn 15. nóvember var fundi fram haldið. Nefndir skiluðu áliti.

Hér á eftir fara nefndarálit með áorðnum breytingum og að undangengnum umræðum.

Tillögur mennta- og menningarmálanefndar.

1. Tillaga um háskólanám á Suðurlandi.
34. aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003 fagnar þeirri áfangaskýrslu um uppbyggingu háskólanáms á Suðurlandi sem liggur fyrir fundinum og þeim metnaðarfullu áformum sem þar eru sett fram. Fundurinn samþykkir að samstarfsnefndin haldi áfram þeirri vinnu sem þegar er hafin. Hafa ber í huga þá möguleika sem felast í samstarfi háskólastofnana á svæðinu og tengingu við verkefni sem þegar eru í gangi, s.s. Sunnan 3 eða önnur hliðstæð.

2. Tillaga um uppbyggingu Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi.
34. aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003 skorar á ríkisvaldið að standa með myndarlegum hætti að stafsemi og uppbyggingu Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi. Eigi skólinn að geta þróast eðlilega þarf stóraukið fjármagn til starfseminnar.

3. Tillaga um málefni tónlistarskóla.
34. aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003 skorar á samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga um málefni tónlistarkennslu á framhaldsskólastigi að ljúka vinnu sinni sem allra fyrst.
Fundurinn leggur áherslu á að framhalds- og háskólanám er á hendi ríkisins og því eðlilegt að ríkið beri kostnað af tónlistarnámi á framhaldsskólastigi. Nauðsynlegt er að gengið verði frá samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um þetta mál hið fyrsta þar sem tónlistarnám fjölda nemenda er í óvissu eins og mál standa í dag.

4. Tillaga um viðbyggingu við íþróttahús Fjölbrautaskóla Suðurlands.
34. aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003 fagnar því að ríkisvaldið hefur samþykkt að taka þátt byggingu íþróttahúss við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Fundurinn hvetur ríkisvaldið til að leggja sitt af mörkum til fullnaðarfrágangs við byggingarinnar svo hægt verði að taka hana í notkun sem allra fyrst.

5. Tillaga um stefnu í menningarmálum á Suðurlandi.
34. aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003 fagnar fram komnum drögum að stefnu í menningarmálum á Suðurlandi. Fundurinn hvetur til að lögð verði vinna í fullmótun stefnunnar.

Hvatning til stjórnar SASS
Mennta- og menningarmálanefnd beinir því til stjórnar SASS að haldið verði málþing um kosti og galla þeirra hugmynda sem fram eru komnar varðandi styttingu náms til stúdentsprófs og áhrif þeirrar hugmynda á búsetuskilyrði á landsbyggðinni.
Samþykkt samhljóða.

Jóna Sigurbjartsdóttir, formaður nefndarinnar mælti fyrir þessum tillögum, en aðrir í nefndinni voru Aldís Hafsteinsdóttir, Bjarki Reynisson, Páll Leó Jónsson, Gunnar Þorgeirsson, Drífa Kristjánsdóttir, Gunnsteinn R. Ómarsson, Ásmundur Sverrir Pálsson, Steinunn Kolbeinsdóttir, Þorsteinn Hjartarson og Andrés Sigmundsson og Baldur Kristjánsson sem varð að hverfa af fundi, en vakti athygli á nauðsyn þess að byggja upp opið fjölmenningarsamfélag og taldi þá sem fyrir eru ekki síður þurfa “aðlögunar” við en þá sem aðfluttir eru. Taldi hann einnig tímabært að tala um “Háskólann á Suðurlandi.”

Fjárhagsnefnd – ályktanir.

Í nefndinni sátu Ágúst Ingi Ólafsson, Ólafur Áki Ragnarsson, Margrét K. Erlingsdóttir, Ingunn Guðmundsdóttir og Bergur E Ágústsson. Auk þess tók Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS þátt í störfum nefndarinnar.

Eftirfarandi mál voru tekin fyrir og þau samþykkt:
· Ársreikningur SASS 2002. Lagt er til að reikningurinn verði samþykktur.
· Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2002. Lagt er til að reikningurinn verði samþykktur.
· Ársreikningur Skólaskrifstofu Suðurlands 2002. Lagt er til að reikningurinn verði samþykktur.
· Fjárhagsáætlun SASS 2004. Lagt er til að fjárhagsáætlunin verði samþykkt.
· Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2004. Lagt er til að fjárhagsáætlunin verði samþykkt.
· Fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands 2004. Lagt er til að fjárhagsáætlunin verði samþykkt.

Fjárhagsnefnd vill vekja athygli á því að ársreikningar SASS og Skólaskrifstofu Suðurlands sýna veruleg frávik frá fjárhagsáætlun síðasta árs. Fjárhagsnefnd leggur áherslu á að aðhald verði sýnt í rekstri og fjárheimildir virtar.

Samþykkt samhljóða.

Tillögur atvinnu- og samgöngunefndar

Atvinnu- og samgöngunefnd samþykkir eftirfarandi tillögur samgöngunefndar SASS, með áorðnum breytingum.

1. Aukin áhrif sveitarstjórna
Lagt er til að tekið verði upp aukið samstarf við sveitarstjórnir af hálfu þingmanna kjördæmisins og Vegagerðarinnar um forgangsröðun verkefna í vegamálum landshlutans, hvað varðar nýbyggingar og viðhaldsverkefni. Í þessu skyni verði gert samkomulag um reglulega fundi þessara aðila og samgöngunefndar SASS fyrir hönd sveitarfélaganna. Lagt er til að fulltrúi samgöngunefndar SASS verði áheyrnarfulltrúi á fundi alþingismanna og fulltrúa Vegagerðarinnar við skiptingu vegafjár, sem þingmenn hafa til ráðstöfunnar.

2. Umferðarþungi og mælingar – hlutur Suðurlands
Mikil áherslu er lögð á að mælingar á umferð verði framkvæmdar reglulega í framtíðinni, því öðru vísi er ekki hægt að standa skynsamlega að ákvörðunum. Nú er byggt á gömlum mælingum og afleiddum reiknilíkönum og bendir fjölmargt til að um verulega skekkju sé þar að ræða. Vert að benda á stóraukinn ferðamannastraum og stórfellda uppbyggingu sumarhúsa á síðustu árum í því sambandi. Ætla má að þessi þróun hafi orðið mun hraðari á Suðurlandi en í flestum öðrum landshlutum. Það er því ófrávíkjanleg krafa að úr þessu verði bætt þegar á næsta ári, enda um óverulegan kostnað að ræða í samanburði við það fjármagn sem varið er til vegaframkvæmda og í raun óskiljanlegt að ekki skuli betur staðið að þessum þætti en raun ber vitni.

Jafnframt er lögð áherslu á að aukið tillit verði tekið til umferðarþunga og lengdar vegakerfis í landshlutanum þegar framlög til samgöngumála eru ákvörðuð. Ljóst er að hlutur Suðurlands í vegafé er engan veginn í samræmi við lengd vegakerfis né umferðaþunga og er um ófullnægjandi mælingar er að ræða. Þá er vakin athygli á mikilvægi vega við uppbyggingu og tilvist atvinnulífs í landshlutanum umfram aðra landshluta.

3. Áhersla á mikilvægi tengivega
Lagt er til að verulega auknu fjármagni verði varið til tengivega á næstu árum og hlutur Suðurlands aukinn hlutfallslega. Tengivegir eru hlutfallslega stór hluti vegakerfis á Suðurlandi og eru í mörgum tilvikum forsenda eðlilegrar byggðaþróunar ekki síst á jaðarsvæðum. Ástand þessara vega er víða í engu samræmi við umferðarþunga. Ljóst er að tengivegir eru sérstaklega mikilvægir í vegakerfi Suðurlands. Tengivegir eru samtals um 650 kílómetrar að lengd á Suðurlandi og kosta að ljúka uppbyggingu þeirra samkvæmt kostnaðartölum Vegagerðarinnar rúma 11 milljarða króna. Miðað við núverandi framlög til tengivega mun það því taka á milli 70 -80 ár að fullgera þessa vegi á Suðurlandi!

4. Umferðaröryggi
Lögð er áherslu á að nauðsyn þess að auka umferðaröryggi verulega með lagfæringum á þeim samgöngumannvirkjum þar sem slys eru tíð, en arðsemi slíkra framkvæmda er gríðarleg, sbr. skýrslu Vegagerðarinnar frá 1999 um lagfæringu slysastaða á þjóðvegum á Suðurlandi og Reykjanesi.

5. Veggirðingar
Miðað við óbreytta verkaskiptingu ríkis og sveitafélaga er lagt til að gerður verði samningur á næsta ári við Vegagerðina af hlutaðeigandi sveitarfélögum um viðhald girðinga og framkvæmdir meðfram þjóðvegi 1 allt frá Ölfusi í vestri og að Skeiðarársandi í austri. Ef reynslan verður góð verði stefnt að því að slíkir samningar verði gerðir um allar stofnbrautir á Suðurlandi.

Heimild er í vegalögum um að Vegagerðin geti tekið að sér viðhald girðinga þar sem umferð er a.m.k. 500 bílar á dag. Skilyrði er að viðkomandi sveitarfélag banni lausagöngu búfjár meðfram viðkomandi vegi.

6. Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga varðandi viðhald vega.
Lagt er til að allur snjómokstur, hreinsun þjóðvega og veggirðingar verði á hendi Vegagerðarinnar, enda eðlilegt að öll verkefni sem tengjast þjóðvegum séu á einni hendi. Þeim tilmælum er beint til Sambands íslenskra sveitarfélaga að þau taki þetta mál upp í viðræðum við ríkisvaldið um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

7. Viðræður við samgönguyfirvöld
Lagt er til að þingmenn Suðurkjördæmis hefji nú þegar viðræður við samgönguyfirvöld um að rétta hlut Suðurlands gagnvart öðrum landshlutum við skiptingu fjár til samgöngumála, sbr. niðurstöðu skýrslu samgöngunefndar SASS.

8. Forgangsröðun framkvæmda.
Í þessari tillögu er gengið út frá að staðið verði við þær framkvæmdir sem þegar eru komnar inn á samgönguáætlun.

Lagt er til að eftirtaldar framkvæmdir hafi forgang í samgöngumálum Sunnlendinga á næstu árum:

Stofnbrautir
a. Gerðar verði varanlegar endurbætur á Suðurlandsvegi um Hellisheiði með fjölgun akreina. Framkvæmdin er gríðarlega mikilvæg af fjölmörgum ástæðum, en þar ber hæst stóraukinn umferðarþunga, aukna slysatíðni og aukið mikilvægi leiðarinnar vegna breytts atvinnulífs.
b. Gerðar verði úrbætur á leiðinni í gegnum Selfoss, þar sem umferð hefur stóraukist er veldur umferðartöfum.
c. Stofnbrautir á Suðurlandi sem ekki eru inni á vegaáætlun verði teknar inn við næstu endurskoðun vegaáætlunar.

Tengivegir
d. Stóraukin áhersla verði lögð á uppbyggingu tengivega. Lagt er til að fjármagn til þessara framkvæmda verði fjórfaldað, þannig að hægt verði að ljúka uppbyggingu þeirra á næstu 20 árum.

Safnvegir
e. Lagt er til að fé til safnvega verði aukið. Vakin er athygli á að ekki fæst fé til byggingar slíkra vega að nýbýlum, eyðibýlum og nýjum mannvirkjum sem oftar en ekki eru byggð vegna nýrrar atvinnustarfsemi í dreifbýli og eru þaraf leiðandi mjög mikilvæg varðandi búsetu og þróun byggðar á landsbyggðinni.
Landsvegir
f. Vakin er athygli á stóraukinni umferð á hálendinu og nauðsyn þess að bæta þær samgönguleiðir. Á næstu vegaáætlun verði fjölförnustu ferðamannaleiðirnar settar í landsvegakerfið.
Reiðvegir
g. Lagt er til að Vegagerðin hraði lagningu og frágangi reiðvega.

Jarðgöng – rannsóknir
h. Eftirfarandi rannsóknir vegna hugsanlegra jarðganga verði unnar á næstu tveimur árum:
i. Athugun verði gerð á þýðingu þess að gera jarðgöng gegnum Reynisfjall og mat lagt á kostnað við slíka framkvæmd. Vegurinn yfir Reynisfjall er ein af aðal samgöngutálmunum á þjóðvegi 1 allt austur á land og þar er ein af hættulegustu beygjum í vegakerfinu. Veruleg samgöngubótbót væri því gerð slíkra gangna.

ii. Rannsakaðir verði möguleikar á jarðgöngum til Vestmannaeyja og lagt mat á kostnað við gerð slíkra jarðgangna. Jarðgöng til Vestmannaeyja hefðu stórkostlega þýðingu fyrir íbúa Vestmannaeyja en jafnframt yrðu þau lyftistöng fyrir allt atvinnulíf á Suðurlandi.

Sameining orkufyrirtækja á Suðurlandi.
Aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003 tekur undir hugmyndir um sameiningu orkufyrirtækja á Suðurlandi. Fundurinn telur mjög mikilvægt að dreifikerfi RARIK í kjördæminu verði hluti af nýju og öflugu orkufyrirtæki í Suðurkjördæmi. Í orkumálum að öðru leyti vísast í fyrri samþykktir aðalfunda SASS.

Fjarskiptamál.
Aðalfundur SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003 fagnar þeim áföngum sem náðst hafa í uppbyggingu ISDN-kerfisins um sveitir landsins en bendir á að ISDN-lausnir eru ekki fullnægjandi fyrir stjórnsýslu, skóla, fjarkennslu og fyrirtæki og skorar á samgönguráðherra að beita sér fyrir því að verðskrá Landssímans stuðli ekki að rýrari samkeppnisstöðu einstakra landssvæða gagnvart öðrum t.d. hvað varðar ATM og Frame Relay tengingar.

Greinargerð:
Ljóst er að Landssíminn hyggst ekki byggja upp ADSL kerfið á smærri þéttbýlisstöðum. Núverandi tækni býður hins vegar upp á nothæfar lausnir án umtalsverða fjárfestingu fyrir Landssímann en verðskrá fyrirtækisins er með þeim hætti að smærri fyrirtæki og stofnanir eiga erfitt með að bera rekstrarkostnaðinn. Það leiðir hins vegar til þess að þessir staðir verði minna aðlaðandi til búsetu þó að þar sé jafnvel hægt að ráða við tölverða fólksfjölgun án mikilla fjárfestinga.
Tillögurnar samþykktar.
Allsherjarnefnd á aðalfundi SASS, haldinn að Laugalandi í Holtum, 14. og 15. nóvember 2003

Í nefndinni sátu: Sveinn A. Sæland, formaður, Jónas Jónsson, Gylfi Þorkelsson, Halldór Valur Pálsson, Sveinn Pálsson, Snæbjörn Sigurðsson, Eiríkur Ágústsson, Aðalsteinn Guðmundsson og Lúðvík Bergvinsson. Einnig sátu fundinn Guðmundur Ingi Gunnlaugsson og Valtýr Valtýsson.

1. Skattar elli- og örorkulífeyrisþega.
Aðalfundur SASS beinir þeim tilmælum til stjórnar SASS að kanna möguleika á samræmingu skattaafsláttar elli- og örorkulífeyrisþega hjá aðildarsveitarfélögum.

2. Varðveisla Héraðsskólans að Laugarvatni.
Aðalfundur SASS skorar á menntamálaráðherra að varðveita sögufrægar skólabyggingar að Laugarvatni. Fundurinn leggur höfuðáherslu á að Héraðsskólinn að Laugarvatni, sem nú hefur verið friðaður, fái forgang hjá ríkisvaldinu við uppbyggingu friðaðra húsa.

3. Íþrótta- og Ólympíumiðstöð að Laugarvatni.
Aðalfundur SASS fagnar þeim hugmyndum sem fram hafa komið í nefndaráliti um uppbyggingu Íþrótta- og Ólympíumiðstöðvar Íslands að Laugarvatni. Sveitarfélög á Suðurlandi ítreka að uppbyggingin hefur mikið gildi fyrir íþrótta- og forvarnarstarf á Íslandi. Hún styður við starf Íþróttafræðaseturs Kennaraháskólans og mun efla hana sem rannsóknar- og menntastofnun.
Aðalfundurinn samþykkir að fulltrúar SASS taki þátt í viðræðum við ríkisvaldið um uppbyggingu Íþrótta- og Ólympíumiðstöðvar Íslands að Laugarvatni.
4. Þjóðlendumál.
Aðalfundur SASS hvetur ríkisvaldið til að stöðva málarekstur fyrir Óbyggðanefnd þar til endanlegur úrskurður dómstóla liggur fyrir en ríkisvaldið hefur lýst því yfir að það muni áfrýja dómi Héraðsdóms Suðurlands frá 6. nóvember 2003 til Hæstaréttar. Aðalfundurinn fagnar niðurstöðu Héraðsdóms þar sem staðfestur er úrskurður Óbyggðanefndar þess efnis að land innan þinglýstra landamerkja teljist ekki til þjóðlendu.
Jafnframt skorar fundurinn á ríkisvaldið að standa við fyrirheit um greiðslu alls málskostnaðar.

5. Málefni fatlaðra. Evrópuár fatlaðra 2003.
Aðalfundur SASS skorar á sveitarfélög á Suðurlandi að leggja sitt af mörkum til að gera fötluðu fólki mögulegt að njóta sömu tækifæra og aðrir íbúar.

Árið 2003 hefur í Evrópu verið tileinkað málefnum fatlaðra. Einkunnarorðin eru “Samfélag fyrir alla” og beinast áherslur að því að vekja almenning til vitundar um réttindi þeirra sem búa við fötlun. Skapa þarf fötluðu fólki aðstæður til þess að geta verið virkir þátttakendur í samfélaginu og geta búið við sambærileg lífskjör og aðrir hópar samfélagsins. Aðgengi í víðri merkingu er lykillinn að slíkum aðstæðum. Tekur það m.a. til ferlimála, búsetumöguleika, aðgangs að menntun og störfum, heilbrigðisþjónustu, tómstunda, menningar og afþreyingar.

6. Löggæsla á Suðurlandi.
Aðalfundur SASS haldinn á Laugalandi 14.-15. nóvember 2003 krefst þess að ríkisvaldið hækki verulega fjárveitingar til löggæslu á Suðurlandi svo lögreglan nái að sinna lögboðnum skyldum sínum.
Greinargerð: Áætlað er íbúatala tvöfaldist á venjulegum sumardegi í Árnessýslu og jafnvel þrefaldist á annasömustu ferðahelgum. Svipuð þróun er í austursýslunum þótt sumarbústaðir séu þar færri. Umferð er jafnframt orðin mikil í sumarbústaði allt árið. Margir fjölsóttustu ferðamannastaðir landsins eru á Suðurlandi. Íbúafjöldi á bak við hvern lögreglumann á landsvísu er 441. Sem dæmi um stöðu mála á Suðurlandi eru rúmlega 800 íbúar á bak við hvern lögreglumann í Rangárvallasýslu. Í ljósi ofangreinds samanburðar og verulegs viðbótarálags á löggæsluna vegna sumarhúsa og ferðamannastraums hlýtur það að vera meginkrafa að verulega verði aukið við framlög til löggæslu á Suðurlandi.

7. Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga.
Aðalfundur SASS haldinn á Laugalandi 14.-15. nóvember 2003 fagnar þeirri endurskoðun sem hafin er á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og leggur áherslu á að samstarfsverkefnum verði fækkað eins og kostur er og að verkefnin verði annaðhvort á hendi ríkis eða sveitarfélaga. Einnig að tryggt sé að öllum verkefnum, sem sett eru í hendur sveitarfélaga fylgi tekjustofnar til að standa undir kostnaði.

8. Tekjustofnar sveitarfélaga.
Aðalfundur SASS haldinn á Laugalandi 14.-15. nóvember 2003 fagnar átaki sem hafið er til að stuðla að sameiningu sveitarfélaga og að samhliða skuli unnið að tillögum um breytingar á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Fundurinn leggur áherslu á að við ákvörðun tekjustofna verði tekið fullt tillit til mismunandi aðstæðna sveitarfélaga og að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga verði styrktur þannig að öllum sveitarfélögum verði gert kleift að sinna lögbundinni þjónustu.

9. Byggðamál.
Aðalfundur SASS haldinn á Laugalandi 14.-15. nóvember 2003 minnir á að þeir hlutar svæðisins sem lengst liggja frá höfuðborgarsvæðinu, hafa ekki notið jákvæðra áhrifa þenslu undanfarinna ára og því ber stjórnvöldum að horfa til þessara svæða þegar kemur að byggðatengdum aðgerðum hvað varðar rekstur fyrirtækja og sveitarfélaga jafnt og sambærilegra svæða í öðrum landshlutum.

Greinargerð:
Ljóst er að nágrannasveitarfélög höfuðborgarinnar á Suðurlandi njóta návistarinnar í verulegum mæli og þar býr einnig megin þorri íbúa Suðurlands. Því hefur eðlilega borið á því að ráðamenn telji Suðurland vera í ágætum málum og ekki þurfa á sérstökum byggðastuðningi að halda. Eystri hlutar kjördæmisins hafa hins vegar átt í vök að verjast og þola illa að vera settir í skugga þeirra sem njóta góðs af nábýlinu við höfuðborgina.

10. Hestamiðstöð að Gaddstaðaflötum.
Aðalfundur SASS haldinn á Laugalandi 14.-15. nóvember 2003 skorar á þingmenn Suðurkjördæmis að tryggja aðkomu ríkisins að uppbyggingaráformunum á Gaddstaðaflötum þannig að ljúka megi fjármögnun verkefna vegna LM 2004. Einnig hvetur aðalfundurinn sveitarfélög, sem samþykkt hafa að koma að verkefninu, til að skila sínum framlögum til verkefnisins þegar eftir er leitað. Þá skorar fundurinn á sveitarfélög sem ekki hafa samþykkt aðild, að endurskoða fyrri ákvörðun og taka þátt í þessu sameiginlega verkefni Sunnlendinga.

Greinargerð:
Á síðastliðnu ári fengu Rangárbakkar Hestamiðstöð sjö milljónir króna af fjárlögum ríkisins og sveitarfélög í Vestur-Skaftárfellssýslu lögðu fram hluta af áætluðu framlagi. Sveitarfélög í Rangárvallasýslu lögðu fram tæplega helming af áætluðum hlutafjárloforðum þeirra, alls um 10.5 milljónir króna. Á þessu ári hefur RHS fengið sjö milljónir króna af fjárlögum til verkefninsins úthlutað af fjárlaganefnd og síðan aðrar sjö til vegagerðar á svæðinu frá Vegagerð Ríkisins. Í heild hefur ríkið því lagt 21 milljón króna til verkefnisins nú. Á næsta ári er vonast til að aðkoma ríkisins verði orðin allt að fimmtíu milljónir króna eða einn þriðji þess sem upphaflega var áætlað. En til þess að svo megi verða þarf öflugan stuðning frá sveitarstjórnarmönnum og þingmönnum kjördæmisins.

Landsmót hestamanna 2004 verður haldið á Gaddstaðaflötum. Til að geta uppfyllt þær kvaðir sem því fylgja er afar brýnt að allir skili sínu framlagi til verkefnisins. Það er bæði hagur og sómi Sunnlendinga umgjörð mótsins verði sem allra glæsilegust. Hagur vegna þeirra atvinnuáhrifa sem slík mót hafa á svæðinu öllu, en ekki síður sá sómi sem af því er að eiga best útbúna landsmótssvæðið og bera gæfu til að standa saman um það og tryggja stöðu þess til framtíðar.

ü Verkefnið um uppbyggingu á Gaddstaðaflötum er vel skilgreint og með breiðan bakstuðning.
ü Mikil vinna hefur verið lögð í allan undirbúning verkefnisins með skýrslugerð þar sem vandlega er sagt frá hvað gera skal og hvers vegna.
ü Breið samstaða er meðal hestamanna á öllu Suðurlandi um stuðning við verkefnið.
ü Á Gaddstaðaflötum er sameiginleg aðstaða átta hestamannafélaga sem hafa innan sinna raða rúmlega 1.600 virka meðlimi.
ü Sveitarfélög á Suðurlandi, utan tvö hafa samþykkt aðkomu að verkefninu.
ü Uppbygging á Gaddstaðaflötum mun styrkja stöðu Sunnlendinga í samkeppninni um að halda Landsmót hestamanna í framtíðinni.
ü Verkefnið um uppbyggingu landsmótssvæðisins á Gaddstaðaflötum er eitt af sameiginlegum verkefnum Sunnlendinga!!

11. Lagabreytingar.
Allsherjarnefnd leggur til að framkomnar tillögur að lagabreytingum verði samþykktar.

Aðalfundur SASS beinir því til stjórnar samtakanna að fyrir næsta aðalfund verði lagðar fram lagabreytingatillögur er varða grein 4.1 um fjölda stjórnarmanna, fækkun eða stofnun framkvæmdaráðs innan stjórnar, grein 4.2 um að aðalfundur kjósi löggildan endurskoðanda og grein 7.1, reglur um inngöngu og úrsögn í SASS.

12. Skýrsla stjórnar.
Allsherjarnefnd gerir ekki athugasemdir við skýrslu stjórnar. Nefndin lýsir ánægju sinni með undirbúning fundar og útsend gögn.

Nefndarálitið samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og heilbrigðismálanefnd

Bygging öldrunardeildar við Heilbrigðisstofnunina á Selfossi.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 lýsir áhyggjum sínum yfir þeirri frestun sem orðið hefur á viðbyggingu við Heilbrigðisstofnunina á Selfossi sem hýsa á starfsemi sem nú er á Ljósheimum á Selfossi. Núverandi aðstaða á Ljósheimum er með öllu óviðunandi og hefur deildin verið rekin á undanþágum sl. þrjú ár.

Ítrekað hefur verið bent á að fyrirhuguð nýbygging gerir ekki mikið betur en að rúma þá sjúklinga sem nú eru á Ljósheimum og þörf er á fleiri rýmum. Suðurland er þéttbýlt svæði og nauðsynlegt að hjúkrunardeildin á Selfossi verði stærri en nú eru áform um. Minnt er sérstaklega á ákvæði 14.gr. laga um málefni aldraðra, hvað varðar aðstöðu fyrir aldraða með heilabilunareinkenni og ákvæði um einkaherbergi fyrir sem flesta .

Fundurinn skorar á heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra að þegar verði sett nægt fjármagn í þetta verkefni til að unnt verði að taka nýbygginguna í notkun árið 2005 eins og áætlað var.

Rekstur hjúkrunar- og dvalarheimila.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvmeber 2003 skorar á Alþingi, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra að tryggja að daggjöld til hjúkrunar og dvalarheimila standi undir eðlilegum rekstri heimilanna.

Daggjöldum frá ríkinu er ætlað að standa straum af rekstri þessara heimila og því þurfa þau að vera í samræmi við rekstrarkostnað. Fundurinn leggur áherslu á að gætt sé jafnræðis í framlögum til hjúkrunar og dvalarheimila í landinu. Nefnd á vegum sveitarfélaga og ríkisins hafi unnið að því að færa daggjöld nær raunverulegum rekstrarkostnaði og hefur lagt fram ítarlega greiningu þar um. Þrátt fyrir að þessar upplýsingar liggi nú fyrir þá hefur fullnægjandi niðurstaða ekki fengist. Fundurinn leggur þunga áherslu á að fullri leiðréttingu verði náð til að tryggja rekstrargrundvöll hjúkrunar og dvalarheimila.

Dagdeild fyrir geðfötluð börn.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 fagnar framkominni þingsályktunartillögu sem allir þingmenn Suðurkjördæmis standa að um stofnun dagdeildar fyrir geðfötluð börn á Suðurlandi. Fundurinn beinir því jafnframt til heilbrigðisráðherra að hann láti gera greiningu á þörf fyrir þjónustu fyrir geðfötluð börn og ungt fólk.

Sameining heilsugæslustöðva á Suðurlandi.
Vegna fyrirhugaðrar sameiningar heilbrigðisstofnunar og heilsugæslustöðva á Suðurlandi um næstu áramót ályktar aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember eftirfarandi:
Verði af fyrirhugaðri sameiningu þá verður hún að vera í nánu samstarfi við heimamenn þannig að þeir verði hafðir með í ráðum um þjónustu og skipurit nýrrar stofnunar. Með þessu nýja fyrirkomulagi verði tryggt að heilbrigðisþjónusta skerðist ekki frá því sem verið hefur heldur batni hún og verði fjölþættari og með betri og öflugri sérfræðiþjónustu eins og fyrirheit hafa verið gefin um.

Þjónusta við geðsjúka.
Geðheilbrigðisþjónusta er ein af grunnstoðum heilbrigðiskerfisins og þarf að vera aðgengileg fólki í heimabyggð. Það er óviðunandi að þeir íbúar á Suðurlandi sem eiga við geðsjúkdóma að stríða þurfi að sækja alla geðþjónustu til Reykjavíkur.

Geðheilbrigðisþjónusta er á verksviði ríkisins og því telur aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 nauðsynlegt að komið verði upp skipulagðri geðheilbrigðisþjónustu í tengslum við þær stofnanir sem fyrir eru á svæðinu.
Fundurinn skorar á þingmenn Suðurlands og Alþingi að setja fjármagn í uppbyggingu geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu, íbúum Suðurlands til hagsbóta.

Starfsemi Réttargeðdeildarinnar að Sogni.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 skorar á heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra að tryggja uppbyggingu og áframhaldandi rekstur réttargeðdeildarinnar að Sogni í Ölfusi.

Fyrir liggur kostnaðaráætlun um viðbyggingu á Sogni sem gerir ráð fyrir sjö nýjum plássum, eða helmings stækkun og er kostnaður við stækkun áætlaður tæpar 30 m.kr..
Deildin hefur verið starfrækt í rúm 10 ár og hefur árangur verið með ágætum. Samstarf hefur verið með fangelsinu á Litla Hrauni og Réttargeðdeildinni að Sogni um geðþjónustu við fanga um nokkurra ára bil. Eðlilegt er að skoðað verði með hvaða hætti mætti tengja áframhaldandi þróun og uppbyggingu Sogns og uppbyggingu geðheilbrigðisþjónustu við almenning á Suðurlandi. Bent er á að í gildi er rekstrarsamningur milli Heilbrigðisráðuneytis og Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi um rekstur deildarinnar að Sogni.

Staða sálfræðings við heilsugæslustöðvarnar á Suðurlandi.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 skorar á stjórnvöld að tryggja til frambúðar stöðu sálfræðings við heilsugæslustöðvarnar á Suðurlandi.
Sú óvissa sem árlega hefur ríkt um stöðu sálfræðings er óþolandi og tímabært orðið að festa þessa þjónustu til frambúðar.

Matvælaeftirlit.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 beinir því til þingmanna að þær hugmyndir sem uppi eru um opinbert matvælaeftirlit í landinu verði ekki að veruleika. Ef þessar hugmyndir verða að lögum mun það veikja heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, jafnframt margfalda eftirlit og auka skörun opinberra eftirlitsaðila. Jafnframt telur aðalfundurinn það öfugþróun að verið sé að flytja verkefni frá sveitarfélögum til ríkisins með einhliða valdbeitingu.

Flokkun sorps.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 skorar á aðildarsveitarfélög sín að leggja áherslu á kynningu og þátttöku almennings í flokkun sorps.

Greinargerð:
Flokkun sorps er engin nýjung. Ekki er langt síðan að engu var fleygt á íslenskum heimilum. Um er að ræða að taka upp siði fyrri ára og flokka allan úrgang og gera hann að verðmætum. Móttaka á flokkuðum úrgangi er víða til staðar á Suðurlandi og er aðgengileg öllum. Með aukinni kynningu á flokkun úrgangs má reikna með að almenningur muni í auknum mæli taka þátt í þessari jákvæðu þróun í umhverfisvernd.
Að auki kemur flokkun til með að lækka sorphirðugjald heimilanna þar sem í kjölfar flokkunar mun sorp minnka sem um munar frá hverju heimili. Væri þá sjálfgefið að sveitarfélög færu að vigta sorp frá heimilum með hagræðingu og sparnað í huga. Þar sem sorp er vigtað eru dæmi þess að ekki er þörf að taka sorp nema aðra hverja viku.

Fráveitumál.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 bendir á að frestur sá sem sveitarfélögin og iðnfyrirtæki hafa til að koma fráveitumálum sínum í lag rennur út í árslok 2005. Þó margt hafi áunnist í fráveitumálum er enn víða pottur brotinn. Í jafnkostnaðarsömum og viðamiklum málaflokki er tíminn fljótur að líða og því verða mörg sveitarfélög og fyrirtæki að hafa hraðar hendur til að ná settum markmiðum. Jafnframt beinir fundurinn því til ríkisvaldsins að koma inn með öflugri hætti með auknum styrkveitingum.

Skýrsla Heilbrigðiseftirlits.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 ítrekar ánægju sína frá aðalfundi SASS 2002 með þann ávinning sem náðst hefur í bættu eftirliti og innheimtu eftirlitsgjalda og betri fjárhagsstöðu. Ber að þakka starfsfólki eftirlitsins góðan árangur.

Staða Kjötmjöls ehf.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 harmar þá stöðu sem upp er komin varðandi rekstur Kjötmjöls ehf. en rekstargrundvöllur verksmiðjunnar í þeirri mynd sem til var stofnað er brostinn. Lokun þessarar verksmiðju eitt hið mesta umhverfisslys seinni ára hér á landi, en Kjötmjöl ehf er að taka á móti rúmum 6000 tonnum af sláturúrgangi á ári. Aðalfundurinn skorar á ríkisvaldið að grípa inní þessa óheillaþróun nú þegar. Ennfremur er bent á þá þversögn sem felst í lokun stöðvarinnar þar sem öll viðurkennd þróun úrgangsmála lítur að aukinni flokkun og endurvinnslu.

Neysluvatn.
Aðalfundur SASS haldinn að Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 hvetur sveitarfélög sem ekki hafa nú þegar sótt um starfsleyfi fyrir vatnsveitur skv. nýrri reglugerð að gera það hið fyrsta. Aðalfundurinn bendir jafnframt á að gott neysluvatn er undirstaða búsetu og hollustu og blómlegs atvinnulífs.

Í nefndinni voru:
Ragnheiður Hergeirsdóttir Þorsteinn Loftsson Heimir Hafsteinsson
Torfi Áskelsson Pálína Sigurjónsdóttir Ingvar Guðbjörnsson
Gunnar Örn Marteinsson Margrét Sigurðardóttir Þorsteinn M.Kristinsson
Guðmundur Stefánsson Herdís Þórðardóttir
Auk þess tók Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins
þátt í störfum nefndarinnar.

Tillögurnar samþykktar samhljóða.

Eftirfarandi lagt fram af Lúðvík Bergvinssyni og Sigurði Bjarnasyni:

,, Aðalfundur SASS haldinn á Laugalandi í Holtum 14. og 15. nóvember 2003 tekur undir og styður við þau sveitarfélög, sem vilja fara þess á leit við ríkisvaldið (heilbrigðisráðherra) að taka yfir rekstur heilsugæslu og sjúkrahúsa í viðkomandi sveitarfélögum.”

Samþykkt með þorra atkvæða gegn einu.

Kosningar.
Kjörbréfa- og kjörnefnd lagði fram eftirfarandi tillögu að Stjórn SASS:

Þorsteinn Hjartarson Hveragerði
Sigurður Bjarnason Sv.fél. Ölfus
Sveinn Pálsson Mýrdalshrepp
Þorvaldur Guðmundsson Árborg
Ágúst Ingi Ólafsson Rangárþingi eystra
Margrét Erlingsdóttir Árborg
Guðrún Erlingsdóttir Vestmannaeyjum
Elliði Vignisson Vestmannaeyjum
Sigurbjartur Pálsson Rangárþing ytra
Ragnheiður Hergeirsdóttir Árborg
Gunnar Þorgeirsson Grímsnes- og Grafningshreppi

Varamenn
Herdís Þórðardóttir Hveragerði
Stefán Guðmundsson Sv.fél. Ölfusi
Sveinbjörg Pálsdóttir Skaftárhreppi
Matthildur Vilhjálmsdóttir Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Torfi Áskelsson Árborg
Gylfi Þorkelsson Árborg
Einar Pálsson Árborg
Ólafur Eggertsson Rangárþing eystra
Jónas Jónsson Ásahreppi
Stefán Jónasson Vestmannaeyjabæ
Elsa Valgeirsdóttir Vestmannaeyjabæ

og var hún samþykkt.

Kosið var á milli Gunnars Þorgeirssonar og Ragnheiðar Hergeirsdóttur til formanns. Gunnar hlaut 30 atkvæði, Ragnheiður 17, einn seðill var auður.
Gunnar skoðast því réttkjörinn formaður en Ragnheiður var síðan tilnefnd til varaformanns og samþykkt samhljóða, einnig eftirfarandi tillögur kjörnefndar.
Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands:
Formaður:
Ásmundur Sverrir Pálsson Árborg
Margeir Ingólfsson Bláskógabyggð
Herdís Þórðardóttir Hveragerði
Karl Pálmason Mýrdalshreppi
Eyja Þóra Einarsdóttir Rangárþingi eystra

Varamenn
Margrét Erlingsdóttir Árborg
Eiríkur Ágústsson Hrunamannahreppi
Bjarki Reynisson Villingaholtshreppi
Jóna Sigurbjartsdóttir Skaftárhreppi
Guðmundur Ingi Gunnlaugss. Rangárþingi ytra

Ársfundur Landsvirkjunar:
Árni Jón Elíasson Skaftárhreppi
Sveinn A. Sæland Bláskógabyggð
Valtýr Valtýsson Rangárþing ytra
Torfi Áskelsson Árborg

Varamenn
Már Haraldsson Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Haukur Kristjánsson Rangárþingi eystra
Jónas Jónsson Ásahreppi
Stefán Guðmundsson Sveitarfél Ölfus

Skoðunarmenn
Guðmundur Stefánsson Hraungerðishreppi
Pálína Sigurjónsdóttir Hveragerði

Varamenn
Guðmundur Ingi Gunnlaugss. Rangárþingi ytra
Hrafnhildur Ágústsdóttir Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Heilbrigðisnefnd Suðurlands:
Margrét Einarsdóttir Rangárþingi eystra kemur í stað Heimis Hafsteinssonar
Stefán Guðmundsson Sveitarfél. Ölfus kemur í stað Þórhildar Þorleifsdóttur
Bergur Ágústsson Vestmannaeyjum

Varamenn
Drífa Kristjánsdóttir Bláskógabyggð kemur í stað Sigurðar Inga Jóhannssonar
Guðjón Hjörleifsson Vestmannaeyjum
Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Rangárþingi eystra kemur í stað Margrétar Einarsdóttur

Fulltrúi í stjórn Fræðslunets Suðurlands
Gylfi Þorkelsson Árborg

Til vara
Pálína Björk Jónsdóttir Rangárþingi eystra

Atvinnu- og Samgöngunefnd
Bryndís Harðardóttir Mýrdalshrepp
Engilbert Olgeirsson Rangárþingi ytra
Magnús Ágústsson Hveragerði
Sigurður Ingi Jóhannsson Hrunamannahreppi
Þorvaldur Guðmundsson Árborg

Varamenn
Tryggvi Ingólfsson Rangárþingi eystra
Stefán Guðmundsson Sveitarfél Ölfus
Sveinn A. Sæland Bláskógabyggð
Árni Jón Elíasson Skaftárhreppi
Gylfi Þorkelsson Árborg

Gunnar Þorgeirsson nýkjörinn formaður þakkaði traustið og kvaðst hlakka til að takast á við krefjandi verkefni framtíðarinnar.

Lúðvík Bergvinsson þakkaði góðan fund og hlýjar móttökur gagnvart Vestmannaeyingum.
Bauð hann f.h. síns sveitarfélags til fundar í Eyjum að ári, og var gerður að því góður rómur.

Valtýr Valtýsson fráfarandi formaður þakkaði ánægjuleg samskipti og óskaði nýjum formanni og samtökunum í heild alls góðs í framtíðinni.

Fundarstjórar Guðmundur Ingi Gunnlaugsson og Engilbert Olgeirsson þökkuðu starfsfólki SASS góðan undirbúning og mikla vinnu á þinginu. Einnig móttökur allar og viðurgjörning. Óskuðu þingheimi heilla og sögðu fundi slitið klukkan 12:50.
Helga Guðmundsdóttir, fundarritari