fbpx

Námskeið í lagningu og viðhaldi göngustíga verður haldið á Hvanneyri 27. september frá 9:00 til 17:00, ætlað öllum þeim sem koma að skipulagningu, uppbyggingu og viðhaldi göngustíga.

Helstu efnisþættir eru:

Uppbygging göngustíga, Ragnar Frank, lektor hjá LBHÍ.

Göngustígagerð með verktökum eða með aðstoð sérhæfðra sjálfboðaliðahópa?  René Biasone umsjónarmaður Sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar.

Kynning á stígagerð við Hólaskóla, Kjartan Bollason aðstoðarprófessor á Hólum

Kynning á mismunandi aðferðum í úttekt á ástandi göngustíga og úrbætur. René Biasone teymisstjóri náttúrusvæðateymis Umhverfisstofnunar.

Farið verður út og göngustígar við Andakíl, skoðaðir undir leiðsögn Ragnars, Kjartans og Renés.

Verð námskeiðsins er 1500 kr ( kaffi og súpa fylgir ) nauðsynlegt er að skrá sig fyrir föstudaginn 16. september á stigavinir@gmail.com